SLAPP VEL TIL

SLAPP VEL TIL

Skilabakkinn í vestri trosnaði heldur upp áður en hann náði landi og mun minna varð úr snjókomu.  Meira að segja svo að hún varð nánast ekki nein. Hvergi teljandi ófærð og yfirlitskort Vegagerðarinnar sýnir góða stöðu suðvestalands kl. 8.

Meginþungi bakkans hélt sig að mestu fyrir sunnan Reykjanes. Til hádegis mun hann skila talsverði ofankomu í Landeyjum, undir Eyjafjöllum, í Vestmannaeyjum og í Mýrdal. Snjókomuspákortið frá IGB sýnir stöðuna vel.

Í gærkvöldi byrjuð spár að sýna suðlægari stefnu lægðarinnar hér yfir í kvöld. Þær nýjustu er enn á því að lægðarmiðjan verði svo að segja yfir suðvesturhorni landsins á miðnætti.  Það hefur í för með sé hægan vind hér í þéttbýlinu nærri miðnætti. Lægðin heldur áfram til aust-suð-austurs  og á milli kl. 1 og 2 á nýársnótt berst NV-strengur inn á land á þessum slóðum með allhvössum vindi og þéttum éljum.  Strengurinn fer fljótt yfir, en gæti hæglega valdið ófærð austur yfir Hellisheiði og Þrengslum í nótt eða undir morgunn.