
Það heyrir til undantekninga að hér sé fjallað um annað en veður. Við erum þú líka með tjaldvef þar sem við söfnum saman upplýsingum um verð á tjaldsvæðum á hverju ári. Verðin fáin við bæði frá rekstraraðilum tjaldstæðanna en ekki síður frá gestum sem senda okkur myndir af verðskránni. Nú er svo komið að við höfum fengið verð frá yfir 150 tjaldstæðum um land allt.
Það hefur verið töluverð umræða um verðlag á tjaldsvæðum og finnst sumum gistingin vera orðin heldur dýr. Gisting fyrir einn fullorðinn hefur hækkað um 6,8% að meðaltali frá því síðasta sumar. Verð á rafmagni hefur hækkað öllu meira, eða um 11,3% að meðaltali. Það er þó allur gangur á því hversu mikið verð hefur breyst á milli ára.
Hlutfallslegi hækkar gistingin mest í Mosskǵum þar sem verðið fer úr 2.000 kr í 3.000 á milli ára. Það er raunar svo að þegar meðalverð fyrir landshluta er skoðað þá er greinilegt að dýrast er að tjalda á höfuðborgarsvæðinu. Tjaldsvæðið í Reykjavík er það dýrasta á landinu fyrir flest fjölskyldumynstur. Ef fólk vill spara í útilegu í borginni er ódýrast að tjalda í Hafnarfirði.
Verð á gistingu ræðst af einhverju leyti af þjónustustigi en þó er áhugavert hversu mikill munur er á verði eftir landsvæðum. Ef par með 10 ára barn ætlar að gista yfir nótt þá þurfa þau að meðaltali að punga út 4.589 krónum á Vesturlandi, þar sem tjaldgisting er ódýrust en 5.502 krónum á Austurlandi. Þarna munar um 20%.

Hægt er að velta fyrir sér hver ástæðan sé fyrir þessum verðmun. Ef til vill er þjónustan betri fyrir austan, en svo er líka mun hærra hlutfall svæðana þar forbókanleg en annars staðar. Kannski veldur það hærri verði. Önnur líkleg skýring er að langt er austur fyrir fólk af höfuðborgarsvæðinu, tjaldsvæðin þar fái ekki sama fjölda ferðamanna og annars staðar og þurfi því hærra verð til að svæðin standi undir sér.
Útileguþyrstir landsmenn ættu ekki að þurfa að sleppa ferðalaginu sökum kostnaðar því enn eru í boði ódýr tjaldsvæði um land allt. Í Selvogi er ókeypis tjaldsvæði þar sem tekið er við frjálsum framlögum, frábært það. Á Kleifum við Kirkjubæjarklaustur kostar nóttin fyrir fullorðinn svo 1.000 krónur. Af nógu er að taka og vel hægt að finna ódýr svæði fyrir þá sem það vilja en svo er að sjálfsögðu líka fullt af tjaldsvæðum með flotta þjónustu sem kosta eitthvað meira.
Á tjaldvef Bliku getur hver sem er reiknað út hvað útilegan kostar. Valin er fjölskyldugerð og síðan reiknar út heildarverð á nótt fyrir þá fjölskyldu. Þannig er hægt að komast hjá því að reikningurinn komi á óvart að dvöl lokinni.
Á vefnum er líka hægt að velja ferðadaga og síðan reiknar út hvar besta útileguveðrið verður fyrir þá daga. Algjör snilld þó við segjum sjálfir frá og svo er Blika nú í grunninn veðurvefur. Þegar þetta er skrifað þá á besta veðrið um helgina að vera í Stóra Sandfelli og í Fossárdal. Bæði flott tjaldsvæði í æðislegri náttúru!
