
Eitt af okkar helstu markmiðum á Bliku er að gera sem allra nákvæmustu veðurspár. Í gegnum tíðina höfum við stöðugt unnið að því að betrunbæta spálíkanið okkar til þess að koma í veg fyrir villur í spánni. Við höldum okkar striki og höfum nú gert stærstu breytingu á spálíkani okkar frá upphafi.
Við höfum tekið gervigreindarlíkanið okkar sem verið hefur í prufu fyrir nokkrar stöðvar, endurbætt það og gert sem aðallíkan á síðunni fyrir helstu staði. Við höfum keyrt líkanið undanfarna mánuði og er niðurstaðan sú að það gefur mun betri veðurspár en sjást hafa hingað til.

Þegar skekkja í hitaspám er skoðuð fyrir 8 mismunandi stöðvar um land allt þá kemur í ljós að skekkja í skammtímahitaspám er tæplega 40% meiri í spá Veðurstofu, þ.e. þeirri sem birtist á vedur.is. Sömu sögu er að segja um vindhraða. Meðalskekkja spálíkans Veðurstofunar er um 70% meiri fyrir 24 tíma vindhraðaspár en spár úr nýja líkaninu okkar þegar spár síðustu 14 daga eru skoðaðar.

Við útbjuggum undirsíðu þar sem hægt er að skoða spáskekkju fyrir allar veðurathugunarstöðvar. Hana er hægt að skoða á https://blika.is/spaskekkja. Í grunninn er líkanið okkar oftast best, en þó er Veðurstofan með betri spár fyrir einhverjar stöðvar og í undartekningartilfellum er líkan YR (Evrópska líkanið) best.
Þetta er einungis fyrsta skrefið í innleiðingu þessa nýja líkans og eins og er er líkanið einungis virkt fyrir um 250 spástaði á landinu. En á næstu mánuðum er stefnan sett á að spár fyrir alla staði komi úr nýja líkaninu. Að auki sjáum við tækifæri á að bæta líkanið enn frekar. Stefnan er sett á að geta boðið upp á bestu mögulegu veðurspá fyrir allt landið!