EIGINLEGT HAUST

EIGINLEGT HAUST

Spár gefa skýrt til kynna eiginlegt haust í næstu viku.

Vissulega hefur verið heldur haustlegt undanfarnar vikur, en allra síðustu dagar verið frekar í ætt við sumartíð með S-áttum og allt að 14 til 18 stiga hita fyrir norðan og austan.

En sem sé, allar líkur eru á því að hæðarhryggur í háloftunum komi sér fyrir vestan Grænlands um helgina og með tilheyrandi Grænlandshæð.  Þetta  straummynsur háloftavindanna veldur N-átt hér á landi sem er af  þurrari sortinni.   Það kólnar um land allt, en víða verður sólríkt og fallegt veður ef þetta gengur eftir, en næturkuldi fylgir.

Sjáum á spákorti ECMWF fyrir vikuna 23. til 30. sept. Greinilegt merki er um háan loftþrýsting hér og yfir Grænlandi. Hitanum er spáð 1 til 3 stigum undir meðallagi.

NAO-vísirinum verður í neikvæðum ham (spá GEFS)  til 1. október og sjá má á innfelldu myndinni.  Fylgifiskur þessa veðurlags.  

Sömu spákort fyrir vikuna 30. sept til 7. okt gera síðan ráð fyrir því að hæðarsvæðið í vestri gefi eftir, en áberandi lægðagangur veði úr suðvestri og yfir Skandinavíu. Áfram því norðan- eða norðaustastæður vindur.  Trúlega þá meira um él og dagar með slyddu eða snjókomu norðaustantil. Og áfram er spáð köldum frávikum í hitanum.

Síðasta myndin sýnir síðan úrkomufrávikin þessar tvær sömu vikum í spá ECMWF – Kort sem fæstir myndu tengja við haustrigningar!