Skal alveg viðurkenna að spár um ofur El Niño í haust og vetur hafa hreyft við manni. Venjan er sú að svara þeirri spurningu með semingi, þess efnis hvort El Niño eða andhverfan La Niña hafi áhrif á veðurlag hér. Og bæta við að aðrir og nærtækari þættir móti veður í ríkari mæli en hitabreytingar við miðbaug í Kyrrahafinu.
En auðvitað er þetta einföldun. Flutningur verður varmaskipta sjávar og
lofhjúps sem fylgir þessum stóru sveiflum í yfirborðshitanum og veldur
tilfærslu og breytingum á meginhringrásum. S.s. ríkjandi uppstreymi og
niðurstreymi sem aftur mótar ríkjandi vindrastir. Á við um hvarfbaugsröstina
sunnarlega á norðurhveli jarðar og norðar Rossby-bylgjurnar og skotvindana.
Bugðurnar á skotvindinum skapa til að mynda aðstæður til myndunar
lægðanna og hvert þær berast í framhaldinu.
Rakst á áhugaverða mynd í nýlegri rannsóknargrein. Þar voru skoðuð
veðurgögn með hjálp endurgreininga og heimilda langt aftur í tímann. El
Niño-atburðir voru allt aftur til 1854 flokkaðir til stærri og minni atburða.
Stóru atburðirnir eru skilgreindir þröngt og þeir eru í raun fáir. Meðaltal
þeirra í frávikum 500 hPa flatarins (í rúmlega 5 km hæð) er sýnt á efri
myndinni.
Sameiginlegir drættir koma fram á efri og neðri myndinni. Vek athygli á
að fylgifiskur El Niño er viðvarandi lægðardrag í háloftunum á N-Kyrrahafi,
suður af Alaska. Hvarfbaugsröstin færist sunnar og blátt belti með lágum 500
hPa fleti nær áfram til austurs, yfir Bandaríkin og Mexíkó og áfram sunnarlega
út á Atlantshafið. Þessi tilfærsla hvarfbaugsrastarinnar til suðurs hefur
klárlega áhrif á veður í N-Ameríku en einnig á Atlantshafi.
Allar þessar andstæður hafa tilhneigingu til að aukast þegar El Niño er
öflugur við miðbaug í Kyrrahafinu.
Tökum sérstaklega eftir rauða svæðinu með jákvæðu hæðarfrávikunum sem markverðust eru yfir A-Kanada og við S-Grænland. Ísland er síðan innan áhrifasvæðis þessa.
Lítum þá á sjálfa langtímaspána
Fyrir nokkrum dögum gáfu reiknisetrin út sínar 5–6 mánaða spár. Þær eru settar fram með samræmdum hætti.
Spárnar fyrir október eru nokkuð dreifðar, samræmið eykst í nóvember og það merkilega gerist að það er best yfir miðjan veturinn frá desember til janúar.
Skoðum næst samantekna spá þriggja mánaða, desember til febrúar, frá Evrópsku reiknimiðstöðinni (ECMWF).
Spáin sýnir frávik 500 hPa flatarins. Við sjáum mjög áþekkt mynstur og
kemur fram á sögulegu myndinni (1) fyrir sterkt El Niño. Rétt að taka fram að
reiknaða spáin „veit lítið“ um fyrri atburði, því athyglisvert er að sjá sömu
einkenni á svipuðum slóðum.
Jákvæða hæðarfrávikið yfir Grænlandi og A-Grænlandi er meira afgerandi ef eitthvað er.
Næst er spá frá ECMWF fyrir frávik loftþrýstings á norðurhveli. Vek athygli á þessu:
a. Lægðafrávik suður af Alaska kemur fram með einkar afgerandi hætti.
b. Sjálfri braut vetrarlægðanna er spáð sunnarlega á Atlantshafi og
lágþrýstifrávikið í V-Evrópu er skýrt.
c. Hæðarfrávikið er að sama skapi öflugt í spánni fyrir þetta langa tímabil. Er til marks um bugðóttar Rossby-bylgjur og veikan skotvind á okkar slóðum. NAO-vísirinn verður í frávikamynstri einkar lágur. Rétt er síðar að skoða betur spár um NAO-vísinn og samanburð við fyrri ár.
Það sem vekur ekki síður athygli er hve lítil dreifni er í þessum vetrarspám 9 reiknisetra. Næsta kort sýnir meðalspá þeirra allra fyrir loftþrýstingsfrávik á sama hátt og á síðustu mynd. Spá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar er því algerlega á „línunni“.
Að síðustu skoðum við úrkomufrávik. Miðað við það sem áður er sagt um
háþrýstifrávik, minni lægðagang og aukna tíðni N-áttar, þarf ekki að koma á
óvart að sjá minni úrkomu samanlagt hér suðvestur undan. Frávikið er þó ekki
markvert sunnan- og vestanlands (nema á litlum bletti). Meiri úrkoma en á
meðalvetri víða á meginlandi Evrópu er þó markvert frávik og kannski, þegar upp
er staðið, skýr vísbending um lægðabrautina.
Ég ætla ekkert að tala um hitafrávik, í bili a.m.k. En túlkun spárinnar
um meiri tíðni norðlægra vinda á kostnað þeirra suðlægu er vissulega sú að
líklegara sé að kaldara verði þessa mánuði að jafnaði. Segir sig eiginlega
sjálft. Hins vegar lítið um það hversu kalt verði gangi þetta eftir.
Þar er kannski hvað mest óvissa, hafi reiknisetrunum, á grundvelli öflugs
El Niño, tekist að hitta naglann á höfuðið í spám sínum.
Í lokin er rétt að fram komi að þetta er ekki mín spá, ég aðeins túlka
þær langtímaspár sem finna má á netinu. Frávikin eru hins vegar svo afgerandi
og spárnar það eindregnar að það er eiginlega ekki hægt annað en að segja frá
og fjalla um.