ENN ÓTRÚLEG VETRARBLÍÐA – GLITTIR ÞÓ Í BREYTINGAR
Ekki er hægt að
segja annað en að veðrið leiki við okkur nú í byrjun aðventunnar. Staða
veðurkerfanna er með líkum hætti, eins og svo oft áður þetta haustið.
Hún einkennist af
suðlægari legu á skotvindi háloftanna.
Meginlægðabrautin liggur því langt suður í höfum. Þessa dagana eru lægðirnar
bísna öflugar og beina raka og mildu lofti inn yfir sunnanverða Evrópu. Eftir
situr norður- og norðausturhluti álfunnar með kalt loft sem laumar sér í
rólegheitum austan úr köldum víðáttum Rússlands. Útgeislunin og hægur vindurinn herðir síðan á
kuldanum við yfirborð. Ekki ósvipað og hér inn til landsins, einkum fyrir
norðan og austan.
Undanfarið hafa lægðirnar
í suðri komist norðar á Atlantshafið án þess að hafa bein áhrif, en þó þannig að
austanáttar verður vart með suðurströndinni. Hún stundum nægjailega strerk til
að halda köldu loftinu frá. Því er frostlaust sums staðar sunnan- og
suðvestanlands í dag og á morgun. Á endanum
gefur þessi austanstæða röst eftir og við tekur hægviðri og frost yfir helgina,
einnig suðvestan- og sunnanlands yfir helgina.
Og áfram næstu
daga þessi mjög svo þurra tíð.
En það glittir í
breytingar og eins og oftast eiga þær rót sína í fjarska. Hálftakortið í 300 hPa gildir á mánudag. Þá spáir Evrópska reiknimiðstöðin að álitleg
hæðarbylgja nái að vaxa frá N-Ameríku og í átt til Grænlands. Hún kemur til með að raska öllu veðri við
N-Atlanthaf a.m.k. í einhverja daga. Skotvindurinn nær að brjótast til norðurs
og yfir sunnanvert Grænland um leið og sjálf hæðin stefnir á Bretlandseyjar.
Í stað áttleysu hæðar
hér við land, stundum með veikum austan-þætti vindsins í um 3 – 8 km hæð, að þá
snýst til SV-áttar í háloftunum á þriðjudag.
GFS-spáin bandaríska
er á sömu lund og þar má líka sjá óhjákvæmilegar
breytingar. Á síðaustu myndinni eru tvö spákort sem sýna lægðir úr suðvestri nærri
landinu. Þá fyrri snemma á miðvikudag og síðari snemma á föstudag.
Sjáum hvað setur,
en ýmilegt bendir til þess að þessar breytingar verði skammvinnar, og ólíklega einhver
alger viðsnúningur í lofthringrásinni á norðurhveli. En okkur munar klárlega um þessa úrkomu!