FÁDÆMA ÞURRKAR
Ekki á sólbökuðum heittempruðu svæðunum í suðri, heldur
hér á landi. Eiginlega með ólíkindum
hvað staðbundinr þurrkar síðustu vikurnar hafa verið lítið til umfjöllunar.
Um 20. júlí vakti
það eftirtekt mína t.d. austur við Lómagnúp að þar voru þá þegar fjölmargir þurrir
lækjarfarvegir. Ómögulegt var að finna brúklegt neysluvatn. Það var fyrir nærri
fjóðrum vikum. Síðan þá hefur nær ekkert rignt á þessum slóðum.
Vorið var vissulega fremur vætusamt og ekki síst í júní sunnan- og vestanlands. En fyrstu dagana í júlí skipti algerlega um
veðurlag og síðan þá hefur verið fremur þurrt almennt séð á landinu. Og sums staðar fádæma þurrt.
Í Stykkishólmi mældist úrkoman í júlí aðeins 4,7 mm. Næst þurrasti júlí frá upphafi mælinga sem ná allt aftur til 1857! Síðan þá hafa bæst við litlir 0,5 mm.
Í Höfn í Hornafirði mældist úrkomana 11,6 mm. Það er það
minnsta þar, en úrkommælingar ná ekki langt aftur. Í Skaftafellssýslum er veðráttan hins vegar
alla jafna votviðrasöm, líka á sumrin.
Á tveimur svæðum landsins má ætla að í júlí og fyrrihluta
ágúst sé úrkoma innan við 10% af meðallagi.
Annað er innanverður Breiðafjörður að meðtöldum Stykkishólmi. Yfir í
Dali, Hrútafjörð og V-Hún. Hitt er er
SA-lands, frá Fljótshverfi og austur í Berufjörð, að meðtöldum Hornafirði.
Kannski ekki nákvæm afmörkun, og víðar hefur vissulega
verið þurrt, en ekki kannski alveg svo.
Þannig voru skúrdembur í síðustu viku nokkuð drjúgar víða á Suðurlandi
og við Faxaflóa.
Góð rekja í jörðu fyrr í sumar hefur bjargað miklu, en rigningarleysið er fyrir löngu farið að segja til sín. Sér svo sem ekki mikið á gróðri, en margar ár t.d. á Skógarströnd og í Dölum eru að verða nánast vatnslausar. Norðurá við Stekk mælist með 1% meðalrennslis árstímans. Það gerir Fossá í Berufirði einnig. Og þrátt fyrir sólbráð á jöklum í þessari tíð er rennsli jökulánna fremur lítið. Segir manni að það munar verulega um úrkomu upp á venjulegt vatn í jökulám að gera.
Trausti Jónsson segir í umfjöllun sinni að júlí hafi
verið einhver þrálátasti norðanáttarjúlí síðustu 100 ára. Hann birtir líka
áhugavert meðalþrýstikort. https://trj.blog.is/blog/trj/entry/2292991/
En hvað varð um alla vætuna sem vissulega berst af Atlanthafinu í nokkuð „stríðum straumum“ alla jafna? Jú raka loftið barst inn yfir Bretlandseyjar og N-Evrópu. Á Írlandi hafa verið met rigningar og nú í ágúst síðan úrhellið og flóðin í Noregi og víðar.