FJARAR UNDAN SUMRI

FJARAR UNDAN SUMRI

10 daga spá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar talar sínu máli. Spáð er kunnuglegu lægðardragi í háloftunum yfir landinu. Það bæði skarpara og kaldara en síðustu 10 dagana sem seinni myndin sýnir til samanburðar. Málið er að sumarveðráttan hefur verið alveg ágæt norðan- og austanlands síðustu vikuna eða svo og hámakshiti dagsins flesta daga náð um eða yfir 20 stigum. Önnur saga reyndar sunnan- og vestanlands, þar sem verið hefur þungbúið í S- og SV-áttinni.


Eftir daginn í dag, 13.ágúst, verður smám saman svalara á landinu. Reyndar er spáð stroku af mildu lofti með skilum fremur djúprar lægðar úr suðvestri um miðja vikuna. Henni er spáð til austurs fyrir sunnan landið og beinir í lokin til okkar lofti úr norðri og norðvestri.




Suðvestanlands má gera ráð fyrir 8-10 stiga hita að jafnaði (næstu 10 daga). Á hálendinu um 4 - 6 stig. Hitinn verður breytilegri fyrir norðan og austan, en svalir dagar þegar frá líður.

Upp úr 20. ágúst er að sjá í langtímaspám að farið verði að hausta í háloftunun a.m.k. yfir Grænlandi. Á spákortinu fyrir 21. ágúst má sjá stækkandi bláan blett með lágri þykkt. Um þetta leyti tekur oftast að kólna á norðurhjaranum þegar sól er tekin að lækka til muna. 



En er sumarið þar með búið?? 

Alls ekki víst. Sjáum ekki fram í september. Geri þá hægstæðar vindáttir, þá verður enn af nægu sumarlofti af taka við austurströnd N-Ameríku.  Ekkert fast í hendi og alls ekki hægt aðútiloka hlýindakafla framan af í september.

Kortin eru fengin af brunni Veðurstofunnar.