GRJÓTFLUG Í SUÐURSVEIT

GRJÓTFLUG Í SUÐURSVEIT

Með N-storminum sem ríkti í morgun ganga feykiharðir sveipir niður hlíðar jöklanna, sérstaklega sunnantil á Vatnajökli.

Það eru einkum tveir vegakaflar sem þar að varast í N-áttinni á þessum slóðum.  Í fyrsta lagið vestasti hluti Skeiðarársands, frá Lómagnúpi, en þar getur verið mjög byljótt og síðan sandfok, einkum við brúna yfir Gígjukvísl.  Austar á sandinum er veðrið yfirleitt skárra sem og í Öræfum.  Þar til komið er í beygjuna til austurs við Faguhólsmýri.  Stendur þar ofan af Öræfajökli.  Þaðan rekja þeir sig staðirnir einn af öðrum allt austur að Hornafjarðarfljóti.  Hvað verstir þrír kaflar í Suðursveit og á einum þeirra er nýlegur vindmælir við Borgarhöfn.  Þar mældist mesta hviðan 43 m/s. 

Veðrið hefur skánað yfir miðjan daginn en hann gengur aftur upp síðdegis og í kvöld eftir kl. 17 að telja með snörpum byljum, sandfoki og grjótflugi.