HAGSTÆTT LANGTÍMAÚTLIT
Fyrstu 10 daga júnímánaðar var hitinn 2,4 stigum undir meðaltali
og nærri því 4 stigum undir á Akureyri. Fáheyrð kuldafrávik fyrir norðan a.m.k.
Byrjum á frávikakort í háloftunum (500 hPa) fyrstu
10 daga í júní. Háloftlægðin kalda norðausturundan er áberandi á þessu meðalkorti
sem og kalt hitafrávikið í neðri hluta lofthjúps.
En nú eru að verða breytingar. Spákort sem gildir næstu 10
dagana sýnir allt aðra mynd í meðalveðrinu. Spáð er hæðarhrygg í háloftunum. Með
umbreytingu þessari fylgir rigning og strekkings SA-vindur sunnanlands næstu tvo
daga, en eftir það fremur sólríkt svona að jafnaði fram yfir
sumarsólstöður.
Þriðja kortið er spá um þrýstifrávik næstu 10 daga. Dálítið háþrýstisvæði sést norðaustur af landinu
og með henni ríkjandi hægur vindur af A
og NA. Sérlega hagfelld veðurstaða ef úr
rætist um vestanvert landið. Hins vegar eru líkur á því að svalara gæti orðið
austan- og norðaustanlands ef kemur til með að anda af hafi flesta daga.
Hitaspá ECMWF fyrir vikuna 17. til 24 júní sýnir einmitt
jákvæð hitafrávik yfir mest öllu landinu, en neikvætt frávik kemur fram austan-
og norðaustantil. Úrkomufrávik eru ekki
sýnd þessa sömu vikuna, en reiknað er með að fremur þurrt verði almennt séð á
landinu þessa vikuna. Það ásamt spá um
ríkjandi vindátt gefur til efni til bjartsýni og marga sólardaga, a.m.k. sunnan-
og vestantil.
En þau eru líka eftirtektarverð köldu frávikin yfir V-Evrópu og Bretlandseyjum. Einnig er spáð rigningum frá Píreníafjöllum í suðri og norður til Eystrasalts og Finnlands vikuna 17. til 24. júní.