HELGARVEÐRIÐ, 26. -28. NÓV

Helgarveðrið á mannamáli
Föstudagur:
Í nótt og fram á föstudagasmorgun má reikna með snörpum og skeinuhættum hviðum
suðaustanlands, en síðan lægir. Annars bjartviðri
og vægt frost um land allt.
Laugardagur:
Það laumast að okkur mildara loft enn eina ferðina úr vestri. Hægur vindur, og gerir snjóföl á fjallvegum
suðvestan- og vestanlands. Hins vegar dæmigert veður fyrir frostrigningu og hún
getur verið varhugaverð og orsakað lúmska flughálku á vegum. Einni helst á
Suðurlandi og í Borgarfirði.
Sunnudagur: Hlýnar heldur, en enn fremur hægur vindur. Snjóa mun mest allan daginn á fjallvegum austur fyrir fjall, norður í land og vestur á firði. Slydda og slabb eða þá rigning á láglendi, hvað mildast sunnan- og suðvestanlands.