HELGARVEÐRIÐ Á 5 KORTUM
Lægðin sem veldur óveðri og sviptingum um helgina er um margt óvenjuleg og fylgjast þarf vel með þróun mála.
Skoðum nokkur áhugaverð veðurkort. Flest af Brunni Veðurstofunnar úr líkani ECMWF eða DMI/IGB Eitt er úr keyrslu GFS á föstudagsmorgunn.
1.
Miklar hitaandstæður í háloftunum geta af sér stríðan vind. Kortið sýnir meginvindröstina vel, skotvind vestur af landinu seint á laugardagskvöldið. Sunnan hans er óvenju hlýtt loft og heimskauta kuldi norðan hans. Sjálfur strengurinn slær sér niður með aðstoða lægðar sem ekki sést á kortinu.
2.
Fjöllin rífa í vindstrenginn sem kemur að ofan. Við það verður hann byljóttur og miklir hnútar steypast til jarðar, einkum hlémegin brattra fjalla. Kortið sýnir spá um vindhraða í 100 m hæð. Óróleikinn kemur vel fram yfir Vestfjörðum og Norðurlandi. Þar getur verið varasamt að vera á ferðinni þegar verst lætur. Verði meginrastir eins og þessar ótruflaðar af hrjúfu yfirborði, sleppum við oftast nokkuð vel á láglendi. Þó má sjá nokkuð afgerandi SV-vindstreng vestur af landinu með 24-30 m/s (í 100 m hæð). Vindur rífur þarna með sér seltu úr sjónum sem getur valdið áraun á roforkumannvirki. Takið líka eftir óróleikanum við A-strönd Grænlands. Um þetta leyti verður kalda loftið farið að steypast fram af Grænlandsjöklli með miklum látum og illviðri við ströndina (Pideraq vindur).
3.
Hlýjasta loftið fer hér yfir seinnipartinn á laugardag. Það er í raun ákaflega hlýtt og trúlega það hlýjasta sem hefur heimsótt okkur þetta sumarið og þar með á árinu. Sjá má hita í 850 hPa hæðinni (um 1.200 m) allt að 15°C. Um hásumar þykir got að sjá 12 til 14°C. Þykktin (línurnar) er líka í hæstu hæðum. Austanlands má reikna með sannkölluðum hitablásara og allt að 20-22°C, jafnvel eftir að komið verður myrkur.
4.
Sjálf lægðin berst yfir Grænlands og hún dýpkar nokkuð ört við austurströndina. Þarna er henni spáð 966 hPa. Hann það er ekki dýpt hennar sem öllu skiptir, heldur þrýstistigullinn í áttina til háþrýstisvæðisins suður í hafi. Lægðin fer til austurs, strengurinn með og spáð er N-átt strax um nóttina.
5.
Sama og kortið hér að ofan, nema að hér erum við 18 klst síðar á hádegi á sunnudag. Kalda loftið steypist yfir af miklum móð. Ef þetta gnegur eftir erum við að sjá í 850hPa fletinum um 20 stiga hitafall á 18 klst. frá 14°C í -6°C. Það er afar bratt á svo skömmum tíma og mér er til efst að annað eins hafi sést hér lengi. Hefur m.a. í för með sér að hiti á Akureyri svo dæmi sé tekið fer skv. Bliku úr +16 kl. 20 á laugardagkvöld niður í +1°C kl. 13 daginn eftir!