
Á morgun
miðvikudag er spáð talsvert áköfum, en skammvinnum hlýindum þegar fleygur af
lofti með mjög suðlægan uppruna fer norðaustur yfir land.
Kjarni þess
verður yfir Norður- og Austurlandi síðdegis og spá er +8°C í 850 hPa þrýstifletinum
í um 1.300 m hæð. Frostmarkshæðin fer í
stuttu stund upp í allt að 2.500 m hæð !
Vissulega nokkuð sérstakt, en álíka hlýtt loft og jafnvel hlýrra hefur farið hér hjá um svipað leyti árs nokkrum sinnum áður.

Uppruni loftsins er
reiknaður með Hysplit ferlatólinu. Hingað komið í um 1.500 m hæða síðdegis reiknast
uppruni loftsins langt suður í Atlantshafi
eða undan Afríkuströndum nærri 25°N. Þar er stutt í sjálft hitabeltið við
miðbaug! Því þarf ekki að undra að
loftið sé hlýtt, þá vissulega hafi þða kólnað verulega á þessu 3 til 4
sólarhringa ferðalagi sínu.
Hæstur verður
hæstu í hnjúkaþey fyrir norðan. Á Akureyri kæmi mér ekki á óvart að hitinn
komist í 12 til 13 stig og allt að 15°C þar sem best lætur norðanlands. Ætla að
leyfa mér að spá að það gæti orðið á Sauðnesvita við Siglufjörð.
Við samanburð
sést að þessi vetrarhlýindi eru þó ekki eins mikil og afgerandi og hér urðu í
byrjun desember 2019. Á Akureyri komst
hiti þá í 15,5°C (2. des) og sló fyrra hitamet
frá 1964. Litlar líkur á að hitinn
komist í þær hæðir nú. Þarna í byrjun
desember fór hiti í 19,7°C á Kvískerjum sem er hæsti desemberhiti á landinu. Nóvembermetið
er hærra, 22,7°C á Dalatanga, 10. nóv 1999
í eftirminnilegri hitastroku, en þá með
SV-átt.