Í hverjum mánuði
lít ég á veðurlagsspárnar sem safnað er saman á einn stað. Þær eru reiknaðar á ekki færri 9 stórum reknisetrum
hér og þar um heiminn. Oft eru þessar spár
út og suður og fátt sem ere á hönd festandi.
Nú ber hins vegar betur í veiði og allgott samræmi er á okkar slóðum um
meginlínu þeirra.
Lítum
aðeins á spána og reynum að túlka þau frávik sem þar birtast.
Byrjum á
júlí og höfum þann háttinn á að fyrst er tekin spá ECMWF og síðan sams konar
kort fyrir sem er nokkurs konar meðalspá allra 9 reiknisetranna.
Á korti
yfir frávik loftþrýstings má sjá hæðarfrávik vestur af Bretlandseyjum og suður
af Íslandi, það sem meira er að það birtist einnig á safnspáinn (multi) á svipuðum
slóðum.
Frávik lík
þessum hafa sést í nokkur skipti í júlí.
Nærtækast er júlí 2021 og einnig má sjá að 1984 var svipað upp á
teningnum. Má finna fleiri sem eru
áþekkir í þrýstifarinu.
1984 var
hlýtt og sólríkt norðan- og austanlands, en sunnanlands og vestan hins vegar
óþurrkasamt. Á Akureyri var meðalhitinn 12,7°C
2021 var
júlímánuður mjög hlýr og þurr, sérstaklega á Norður- og Austurlandi. Eiginlega metmánuður í hita. Og á Akureyri mældist hitinn hvorki meira né
minna en 14,3°C og hafa aldrei mæst eins
margar sólskinsstundir í júlí þar og þá. Mánuðurinn var jafnframt þurr um mest allt
land.
Kort ECMWF fyrir úrkomfrávikin sýna líkur á þurru veðri, þ.e. að samanlagt úrkomumagn hafni í lægri þriðjungi. Sjáum að guli liturinn nær yfir Austurland og áhrif hærri loftþrýstings koma vel fram í spá um litla úrkomu s.s. á Bretlandseyjum. Safnspáin nær hins vegar engu útslagi fyrir úrkomufrávik hér við land.
Saman má túlka þrýstifrávikin og tengsl við úrkomu þannig að hér á landi verði meira um SV- og V-áttir og minna um vinda á milli norðurs og austurs. Hæðarsveigjan á þrýstisvæðinu og hversu nálægt landinu vænt hæðarsvæði heldur sig. Af því ráðast úrkomulíkum vestantil. Þrátt fyrir hlýindi í rigndi nokkuð í júlí 1984, en ekki 2021.
Hér fylgja
síðan meðalþrýstikort fyirr þessa samanburðarmánuði úr endurgreiningu af Brunni
Veðurstofunnar.
Á morgun lítum við á spá fyrir ágúst úr sömu keyrslum.