HVERNIG ER MEÐ LÆGÐINA SEM SPÁÐ ER 17. OG 18. JÚNÍ?

HVERNIG ER MEÐ LÆGÐINA SEM SPÁÐ ER 17. OG 18. JÚNÍ?

Strax rétt að geta þess, að spárnar hafa breyst. Nú er síður gert ráð fyrir rigningu sunnan- og suðvestanlands, en þess í stað frekar fyrir austan og norðan. Það fylgir með nokkuð snörp N-átt, en ekki endilega svo köld, þó vissulega verði svalt, a.m.k. um norðurhluta landsins á meðan.

Eiginlega ekki tamt að tala um djúpar lægðir á þessum árstíma.  Lægðinni sem spáð er suðaustur og austur af landinu verður vissulega með  öðrum svip en haust- eða vetrarlægðir. Aðdragandinn þó svipaður þar sem hlýtt og kalt loft mætist og raki til staðar suðvestan úr Atlantahafi.  Þáttur rakans og með þéttingu hans hefur meira vægi á sumrin og framan af hausti í dýpkun lægða. 

Í öllu því ferli sjá tölvuspárnar um að leysa flókna eðlisfræðina .


Á fyrra kortinu má greina átakalínur í aðdragabda þessa.  Uppi í um 1.200-1.600 m hæð  má sjá kalt loft sem blátt svæði. Í kjarna þess er frostið 7 til 8 stig í þeirri hæð. Ofar er háloftadraga sem skipir ekki síður máli.  Nokkru sunnar hittir kalda loftið  fyrir hlýtt loft þar sem finna má +13 til 14°C. Þessi hitastigull upp á um 20 stig verður jafnaður út með lægð sem spáð er vestur af Írlandi. Hvort hún sæki líka í  mjög hltt loft frá Evrópu til viðbótar hinu er vafamál.


En hvað sem því líður að þá er lægðinni spáð nú 981 hPa fyrir suaðustan og austan land seint á 17. júní.  Þar snýr hún í kring um sig röku loftinu og beinir því á endanum yfir Norður- og Austurland. Það með NA og N-átt.  Þetta er vel þekkt og úrkomumagnið vill stundum verða umtalsvert staðnæmist lægðin í stað þess að halda áfram í átt til Noregs. Því er reyndar spáð og það getum við einkum þakkað hæðarhrygg úr vestri sem pressar á.

Seinna kortið er spá ECMWF seint á föstudag. Sjá má bæði þnnan umtalaða N-streng yfir landinu mest öllu sem og samfellda úrkomu. Blika gerir ráð fyrir því að á Húsavík verði úrkoman 60-70 mm (rigning, en slydda til fjalla), frá því um miðjan föstudag (17. júní) og fram á miðjan laugardag. Á móti verður að mestu þurrt og hlýrra sunnan heiða, en nokkuð hvasst um tíma.