
Ýmis teikn eru á lofti þess efnis að meginhringrás norðurhvelsins sé mikið að veikjast þessa dagana og sértaklega strax eftir eftir áramót. Hvers lags veður fylgir slíku er mjög að skýrast í langtímaverðurspám.
Fyrra kortið er úr smiðju ECMWF og er niðurstaða af 45 daga spá sem keyrð var í gærkvöldi (28. des). Það sýnir spá um frávik 500 hPa hæðar á norðurhveli í janúar. Þarna má sjá birtingarmynd grynnri heimskautahvirfils og veikari vestanvinda í háloftunum, sem eru einkennandi fyrirstöðuhæðir. Greinileg Grænlandsfyrirstaða í þessari spá og lægðabrautin veikist og flyst sunnar. Slíkar stöður eru vel þekktar og þá einnig veðurlagið hér á landi sem fylgir. Almennt kólnar um N-Atlantshafssvæðinu og hafísnum norðurundan vex ásmeginn.

En vissulega er þetta meðalkort alls mánaðarins. Séu hins vegar aðrar spár sömu keyrslu skoðaðar
nær í tíma verður til eftirfarandi veðurspá:
Nýarsdagur til þrettánda: Á nýársdag verða breytingar. Með hækkandi loftþrýstingi fyrir austan land verður
ríkjandi S-átt þessa daga og hlánar á landinu.
Engin stórátök en nokkuð eindregið milt loft og með úrkomu vestantil,
mest slyddu og rigningu.
7. – 10. janúar: Kólnar með kuldaskilum úr vestri og snýst til
N-áttar. Hæglega getur gert nokkurt kast
um leið og hann snýr sér til N-áttar.
Hæðin tekur sér bólfestu yfir Grænlandi þessa daga.
11 – 17. janúar: Ríkjandi N-átt og fremur kalt í veðri. Hita er spáð 2 til 6 stigum undir meðallagi eins og seinna kortið sömu daga ber með sér. Éljangur norðan- og norðaustantil, en lengst af alveg þurrt sunnantil.
18. - 31. janúar: Líklega
enn hæð yfir Grænlandi, en mögulega veikist hún (eða hverfur og sprettur upp
aftur). Ríkjandi N- eða NA-áttir. Hiti undir meðallagi og enn sérlega þurrt og að
mestu snjólaust um sunnanvert landið.
Þess má geta að langtíma spá GEFS (Bandaríska Veðurstofan)
er í svipaða veru, helst að munur sé á smærri dráttum og síðan hvort eða öllu
heldur hvenær háloftahringrásin nái sér aftur á strik eftir miðjan janúar eða e.t.v.
síðar.