MILDUR APRÍL

MILDUR APRÍL

MILDUR APRÍL
Ætli meðalhitinn í Reykjavík endi ekki í um 5,7°C í nýliðnum apríl og 4,6-4,7°C á Akureyri. Á báðum stöðum um tveimur stigum ofan meðallags.

Já vorið hefur til þess birtst okkur blítt og gjöfult og gróðurframvindan er komin á fullt.

Meðalhiti apríl í Reykjavík hefur þrisvar sinnum síðustu hálfa öldina eða svo farið yfir 6 gráður. Nú síðast 2019 og veit ég að margir muna frábæra vorkomu það ár. Voraði nokkuð skyndilega um 10.apríl og hélst góð tíða fram á sumar. Aðeins sló einu sinni í bakseglin eftir fyrstu viku maí.

Hin árin eru 2003 og 1974. Sá apríl, sjálft þjóðhátíðarárið, er talinn sá hlýjasta frá upphafi mælinga á landsvísu. Á Akureyri var meðalhitinn heilar 6,8°C Rétt eins og 2019, snerist til góðrar tíðar snemma í mánuðinum með samfelldum sunnanáttarkafla. Veðráttan segir að tún hafi verið orðin algræn á landinu í lok mánðarins.

Myndina tók ég í gær, 30 apríl af hálflaufguðu reynitré í Gálgahrauni sem þarna nýtur engrar umhirðu eða skjóls frá byggð og heldur ekki næringarríkrar garðmoldar. Plantan er kalin í topinn.