Í gær birtist mánaðarleg fjölkerfaspá frá níu reiknimiðstöðvum, nú fyrir vetrarmánuðina desember til febrúar – og raunar fram í mars.
Ég rak augun í frétt um að umhverfis- og loftslagsráðherra hefði fyrir helgi lagt fram minnisblað í ríkisstjórn um hugsanlegar afleiðingar El Niño fyrir Ísland „vegna öfgakennds veðurs“, eins og það var orðað. Ég hnaut um þá fullyrðingu, en ég hef ekki séð þetta minnisblaðið sjálfur, að beinar afleiðingar El Niño á Íslandi yrðu litlar. Hins vegar væri landið berskjaldað fyrir svokölluðum óbeinum afleiðingum.
Þessu er ég ekki fyllilega sammála. Vel má vera að bein áhrif séu að jafnaði lítil hér á landi þegar sjávarhitafrávik færast til á miðbaugssvæðum Kyrrahafsins í tengslum við El Niño og La Niña. Nú er hins vegar um að ræða mjög öflugan El Niño-atburð, sem getur haft meiri og víðtækari áhrif á veðurfar jarðar en dæmigerð ENSO-sveifla.
Að auki liggja nú fyrir óvenjuskýrar og samhljóða árstíðaspár.
Þótt margvísleg óvissa fylgi þróun þessa öfluga El Niño og áhrifum hans á veðurfar í vetur eru líkönin, sem reikna árstíðabundna þróun veðurlags, sammála í öllum meginatriðum um breytingar á lofthringrás norðurhvelsins.
Orsakasamhengið
er bísna flókið en í stórum dráttum svona:
a.
Þegar hlýnun sjávarins hefur náð fullum styrk, eða því sem næst, líklega í nóvember, eykst uppstreymi hlýs og rakamettaðs lofts yfir mið- og austanverðu Kyrrahafi. Við þéttingu vatnsgufu losnar mikill dulvarmi hátt í veðrahvolfinu, allt upp undir 10–15 km hæð.
→ Þessi upphitun raskar loftstraumum og kemur af stað öflugum bylgjugangi norður á bóginn. PNA-sveiflan yfir Norður-Kyrrahafi og Norður-Ameríku fer þá gjarnan í jákvæðan fasa, PNA+.
b.
Breyttur bylgjugangur í veðrahvolfinu getur aukið flæði bylgnanna lóðrétt upp í heiðhvolfið. Þar geta þær raskað og veikt heimskautahvirfil háloftanna í um 20–30 km hæð.
→ Í sumum tilvikum getur þetta stuðlað að skyndihlýnun í heiðhvolfinu. Slíkir atburðir eru nokkru líklegri á El Niño-vetrum en þeir eru þó langt frá því að vera sjálfgefnir.
Spálíkönin fyrir veturinn bera öll merki þessara tengsla. Það sem meira er: nýjustu keyrslurnar eru keimlíkar þeim sem birtust fyrir mánuði. Þetta má sjá á fyrstu tveimur kortunum.
Þriðja kortið sýnir fjölkerfaspá um frávik í hæð 500 hPa-flatarins, einnig fyrir tímabilið desember til febrúar. Einkennandi er samfellt og samhangandi frávikamynstur:
Neikvæð hæðarfrávik suður af Alaska, í tengslum við jákvæðan fasa PNA-sveiflunnar, PNA+.
Jákvæð hæðarfrávik yfir Grænlandi og Baffinslandi.
Belti neikvæðra hæðarfrávika yfir sunnanverðu Norður-Atlantshafi, sem endurspeglar suðlæga legu lægðabrautarinnar.
Að síðustu eru sýnd úrkomufrávik úr veðurlagsspá ECMWF. Fyrstu kortin sýna hvern mánuð fyrir sig og líkurnar á að úrkoman lendi í efsta þriðjungi viðmiðunardreifingarinnar. Svipað mynstur kemur fram alla þrjá mánuðina. Það endurspeglar ríkjandi lægðabraut suður í hafi, en mun minni líkur eru á að úrkoma hér við land verði yfir meðallagi.
Síðasta spákortið sýnir einnig úrkomu, en þar eru mánuðirnir þrír teknir saman. Reiknaðar líkur á að heildarúrkoma desember til febrúar verði í lægsta fimmtungi dreifingarinnar eru 30–40% sunnan- og vestanlands. Til samanburðar eru grunnlíkurnar 20%. Þetta er því óvenju eindregið merki í árstíðaspá af þessu tagi.
Samandregið
Merkið í spánni er mjög skýrt. Þrýsti- og úrkomufrávikin benda til aukinna líka á ríkjandi norðlægum og norðaustlægum áttum í vetur, samfara fremur háum loftþrýstingi yfir Grænlandi – svokallaðri Grænlandshæð. Þetta er þurrari gerð norðan- og norðaustanátta.
Hér er ekki fjallað sérstaklega um hitaspána, enda er óvissan þar að líkindum meiri. Loftmassar úr norðri kunna nú að vera hlýrri en þeir voru fyrr á tíð vegna almennrar hlýnunar. Norðlægar áttir eru engu að síður kaldar miðað við aðrar vindáttir hér á landi og einstök kuldaköst geta vitanlega orðið mjög hörð.
Hafa verður í huga að spáin lýsir meðalástandi yfir veturinn en ekki samfelldu og einsleitu veðri. Hún nær aðeins yfir tímabilið desember til febrúar. Áhrif El Niño á lofthringrásina koma líklega ekki skýrt fram fyrr en síðar í haust eða í byrjun vetrar, þegar El Niño hefur náð meiri styrk og lofthringrás norðurhvelsins hefur tekið á sig vetrarsvip.
Síðan má velta því fyrir sér hvaða áhrif ríkjandi norðanáttir gætu haft á samfélag og umhverfi hér á landi – til dæmis á álag á hitaveitur, vatnafar, sjávarhita og útbreiðslu hafíss, fiskeldi í sjó, samgöngur og færð. Ég læt öðrum eftir að sinni að meta mögulegar slíkar afleiðingar.
En þar sem El Niño mælist nú mjög öflugur eru meiri líkur en ella á að hann móti veðrið á okkar slóðum. Áhrifin þurfa ekki að takmarkast við komandi vetur. Hugsanlegt er að þessi miklu sjávarhitafrávik raski lofthringrásinni áfram með flóknum og enn ekki fyllilega skýrðum hætti, jafnvel næstu tvö til þrjú ár. Sumir hafa bent á slík langvinn áhrif þegar svipað var uppi á teningnum, meðal annars í tengslum við hinn öfluga El Niño 1877–78.