Ný uppfærsla á Bliku

Veðurvefurinn Blika.is hefur verið í loftinu frá því skömmu fyrir jól. Um fyrstu útgáfu var að ræða.
Með nýrri uppfærslu fylgja nokkrar nýungar:
1. Hægt verður að stytta sér leið og velja á milli 5 vinsælustu staðanna
2. Gefinn er kostur á að festa sinn stað, þannig að hann birtist sjálfgefinn þegar vefurinn er næst heimsóttur.
3. Upplýsingar um útgáfutíma spárinnar birtist og hvenær næsta uppfærsla verður.
4. Ný spá kemur nú ½ klst. fyrr en áður var.
5. Vefurinn er hraðari nú en áður og einkum á farsíma.
6. Auglýsingar munu birtast á borðum oftast ofan við sjálfa spánna.
7. Blika.is verður einnig virkur veðurfrétta vefur með umfjöllun um spár, veður, loftslag. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á Veðurvaktinni mun sjá um fréttamolana.
Stöðugt bætast við nýir staðir og á næstunni verður hægt að velja á milli þúsunda lögbýla sem og fjölmargra eyðibýla. Ætlunin er að reikna spár fyrir alla golfvelli landsins sem og helstu íþróttasvæði úti við.
Síðustu vikur hefur uppfærsla og keyrsla spákerfisins blika.is gengið snuðrulaust fyrir sig.
Blika.is verður hér eftir spá -og veðurfréttavefur þar sem mest áhersla er lögð á aðgengilegar staðspár og er fólki boðið að sendi inn sína staði, nafn ásamt hniti. Blika.is mun reikna og birta spár 10 daga fram í tímann uppfærða á 6 klst fresti með nýjum bakgrunnsgögnum frá GFS spá Bandarísku Veðurstofunnar í Washington.