ÓTRÚLEGUR HITI Á AKUREYRI!

Frá 1. til 24. júlí reiknast meðalhitinn á Akureyri 14,99°C. Þessi meðalhitatala er mjög há þó svo að mánuðurinn sé ekki liðinn. Það eru reyndar heldur svalari dagar í vændum í komandi viku og til mánaðarmóta. Ekki þó svo kalt, en hér er því spáð að meðalhitinn endi í 14,0 til 14,2°C, Verði sú raunin munu tvö mánaðarhitamet verða slegin.
1. Hæsti meðahiti veðurstöðvar í júlí. Fyrra metið sem er viðurkennt er 13,7°C frá Írafossi 1991.
2. Hæsti mánaðrhiti á Íslandi frá upphafi mælinga! Vafasöm tala, 14,0°C reiknaðist á Vaðþjófstöðum í Fljótsdal í ág. 1880.
Það eru helst Torfur í Eyjafjarðarsveit sem blanda sér í
þessa baráttu og meðaltalið þar kann að skáka Akureyri á endanum. Mývatn og
Hallormsstaður eru þar einnig skammt undan.
Á Akureyri er mælt við Lögreglustöðina í Þórunnarstræti, mælaskýli neðst til hægri (mynd: kaffið.is/Jónatan). Mælistaðurinn er ekki hafinn yfir vafa! Loftmyndin er ný og af Akureyri.net. Ljósm. Axel Þórhallsson.