ÓVISSAN LIFIR GÓÐU LÍFI FYRIR VERSLUNARMANNAHELGINA
Að kvöldi
þriðjudags bregður svo við að báðar helstu langtímaspárnar, ECMWF (Evrópska reiknimiðstöðin)
og GFS (Ameríska spáin) sýna gjörólíka spá komandi laugardagsmorgunn.
Veðurstofan
byggir sýnar staðspár á ECMWF á meðan Blika styðst við inntaksgögn úr GFS.
Við sjáum á samanburðarspákortum kl. 6 á laugardag að á meðan ECMWF spáin reiknar með greinilegri lægð, NV-strekkingi og snjókomu til fjalla norðanlands, en GFS spáin ekki með neina lægð yfir höfuð. Þrýstiflatneskja yfir landinu og hvorki kalt loft né úrkoma kemur því úr norðri.
En hvernig
stendur á þessum mun? Hann liggur ekki í
augum uppi, en með því að rekja seg aftur á bak í leit að frávikum á milli líkananna
má leita skýringa. Í það minnsta kenningu þar um.
Leitin nær til
fimmtudagsins og sami kortasamanburður kl. 12 er hér að neðan. Staldra við örlítil frávik sem örin bendir á
úti á miðju Atlantshafi við meginskilin, en þau sjást á yfirborðskortunum. Sjáum að til vinstri er greinileg bylgja af hlýrra
lofti til norðurs. Hana er ekki að sjá á GFS kortinu til hægri. Þessi hlýja tota sem skerpir á skilunum
skapar aðstæður fyrir frekari dýpkun lægðarinnar síðar meir. Þarna er hún
aðeins sem lítil bylgja.
ECMWF lætur bylgjuna
vaxa á leið sinni norður yfir austanvert Íslands seint á föstudag, en í hinni
spánni gerist fátt á sjálfum skilunum. Stundum þarf ekki merkilegra og meira til! Á sumrin eru slíkar langar og saklausar lægðabylgjur
algengar og sem ekki ná vexti.
En hvor atburðarrásin skyldi nú verða ofan á? Það gæti ráðist allt að því að tilviljun.
*Reiknuð spá á
Bliku sem byggir á þessari nýjust keyrslu verður ekki til fyrr en undir
miðnætti þetta þriðjudagskvöld.