RANGAR VEÐURFRÉTTIR ERU LÍKA FALSFRÉTTIR

RANGAR VEÐURFRÉTTIR ERU LÍKA FALSFRÉTTIR

Veðuráhugafólk skoðar gjarnan veðurathuganir og hér á Bliku er oft fjallað um veðrið sem var í sögulegu samhengi. Þá notum við gjarnan fjarkönnunargögn og athuganir frá viðurkenndum mælistöðum, t.d. frá Veðurstofunni eða Vegagerðinni. Aðrir fjölmiðlar fjalla líka oft um veður. Lítum aðeins á umfjöllun Morgunblaðsins í dag um veðrið síðastliðinn laugardag.

Fjallað er um að veðurspár hafi verið rangar og að mál manna væri að mikil blíða hefði verið í Vaglaskógi á meðan stórtónleikum Kaleo stóð. Fjallað var um spár fyrir tónleikana síðastliðinn föstudag á Facebook síðu Bliku. Bæði spá Veðurstofu fyrir Valgeirsstaði og spá Bliku fyrir Vaglaskóg gerðu ráð fyrir hita í kringum 8 gráður með smá skúrum og hægum vindi á meðan kvöldtónleikunum stóð. 

Rétt er að mikill munur er á spám og lýsingu blaðamanns Morgunblaðsins á veðrinu í skóginum. Skoðum næst veðurathuganir fyrir daginn. Hiti er ekki mældur í Vaglaskógi, en Végeirsstaðir í Fnjóskadal eru í nágrenninu.

Veðurathuganirnar segja aðeins aðra sögu en Morgunblaðið. Á Végeirsstöðum varð næsti hiti dagsins rúmar 15 gráður og vindur var hægur. Á meðan tónleikunum stóð var hitinn 9 - 11 gráður. Vissulega aðeins hlýrra en spáð var, en víðsfjarri 20 gráðum. Þó að hitinn hafi ekki verið mjög hár er ekki þar með sagt að sólin hafi ekki skinið allan daginn á tónleikagesti. Það vill svo heppilega til að AVHRR gervitunglið tók gervihnattamynd af landinu klukkan 20:14.

Á myndinni sést glögglega að um það leyti var þungskýjað í Vaglaskógi. Aðrar gervihnattamyndir sýna að það skiptust á skin og skúrir á laugardag í skóginum. 


Útsendari Bliku var á svæðinu og staðfesti að spáin hefði staðist nokkuð vel. Smá skúrir en hitinn eitthvað aðeins hærri en spáð hafði verið.


Um fullyrðingar um veðurbreyti er óþarfi að hafa mörg orð. Til að breyta veðrinu þarf gífurlega mikla orku og engar líkur á að græjan sem um ræðir hafi teljandi áhrif á veður. Skemmtileg hjátrú engu að síður.


Skoðum líka brot úr frétt á  RÚV frá því á mánudag. Skemmtileg frétt um mannlífið fyrir norðan í sumarblíðunni. Þar segir að hitinn á Akureyri sé hærri en 20 stig.


Hiti hefur lengi verið mældur á Akureyri. Hvað ætli mælingarnar segi? Lengst af var hitinn á Akureyri um 14 - 15 gráður en náði 17,3 stigum klukkan 14. Vissulega góður dagur og tilvalið að sitja úti í sólinni. En 17,3 gráður eru langt frá því að vera yfir 20 gráðum. Fréttin er beinlínis röng. Blaðamaður talaði þó við veðurfræðing sem væntanlega hefði ekki samþykkt þessa fullyrðingu um 20 gráðurnar.


Einhverjir hafa bent á að mælirinn á Krossanes sé staðsettur þannig að veðrið sé ekki lýsandi fyrir Akureyri, að þar sé iðulega lægri hiti á sumrin en ofar í landinu. Ef til vill hefur bíll blaðamanns sýnt hærri hita, en á þá er ekki hægt að treysta. Þess konar mælar gefa ágætis hugmynd um veðrið, en ekki er að líta á mælingarnar sem sannleik.


Það verður algengara og algengara að fjölmiðlar fjalli um veður með óábyrgum hætti. Frétt Morgunblaðsins eru klár ósannindi og frétt RÚV litlu skárri.


Fréttir sem þessar draga að ósekju úr trausti almennings á veðurspám og veðurfræðingum. Það er mikil barátta að leiðrétta þann misskilning að ekkert sé að marka veðurspár á Íslandi. Mælingar sýna svart á hvítu að spár er almennt nokkuð góðar og hafa batnað verulega á síðustu árum.


Þar fyrir utan eigum við að geta treyst á að Íslenskir fjölmiðlar segi satt og rétt frá. Margir fjölmiðlar eru komnir á hálan ís. Falsfréttir um veður eru nefnilega ekkert skárri en falsfréttir um annað efni.