RUDDI Í VEÐRINU TIL 20. - 25. JANÚAR

Eins og áður hefur verið fjallað um hér urðu straumhvörf í lofthringrásinni við N-Atlantshaf um 30. des sl.
Í stað ríkjandi Grænlandshæðar og lítillar V-áttar í háloftunum hefur myndast öflugur heimskautahvirfill norðvestur af Grænlandi. Hann hefur nú tekið stjórnina og keyrir upp vestanvindinn. Við höfum þegar fengið smjörþefinn af þeddum umskiptum með útsynningi á nýársdag og þennan morguninn einnig.
Hálfgert ruddaveður hér á landi, djúpar lægðir, stormar, úrkomu- og snjóatíð sem og sviptingar í hita. V- og SV-áttir verða tíðari og á kostnað A-lægra vinda sem hafa verið ríkjandi hér nánast í allt haust. Að sama skapi fylgir þessir gerða hringrásar milt veður með austurströnd N-Ameríku og eins í V-Evrópu. Kalt hins vegar á Grænlandi og "lekar" tíðir af kalda loftinu í vestri í formi háloftalægða með snjó- og éljabökkum.
Djúp lægð og SA-leysing um helgina, en útsýnningurinn sýnir sig eftir helgina.
Út frá ýmsum hringrásarvísum á norðurhveli og eins við miðbaug og tengslum þar á milli má ætla með sæmilegri vissu að lægðgangur og með sterkri V-átt í háloftunum verði ríkjandi veðurlag a.m.k. til 20.-25. janúar. Á máli veðurfræðinga er líka talað um að NAO (e. North Atlantic oscillation) sé í jákvæðum fasa.
Ég byggi þá spá mína einkum á MJO-vísinum (e. Madden-Julian oscillation). Hann lýtur að uppstreymissvæðum við miðbaug sem 10-15 dögum síðar kemur fram í mynstri veðurkerfanna á norðurhveli jarðar. Nánar skýrt og skorinort um MJO og áhrif á veður einkum á Bretlandseyjum:
https://www.metoffice.gov.uk/weather/learn-about/weather/atmosphere/madden-julian-oscillation
MJO er skipt í 8 aðgreinda fasa. Myndritið sýnir þá og eins það að MJO hefur verið að mestu nærri miðju myndarinnar nær allan desembermánuð og reyndar lengur. Græna línan er miðspá frá ECMWF og sýnir að nú stefnir MJO í fasa nr. 4. Þá er ríkjandi uppstreymi og skúraleiðingar við Indónesíu og Malasíu sem og norður af Ástralíu.
MJO=4 dagana 6. -10. janúar hefur sterk líkindi við NAO+ um 10-15 dögum síðar. MJO=5 gerir það einnig, en sambandi er veikara.
Ýtir sem sé undir áframhaldandi heimskautahvirfil og styrk V-áttarinnar ekki síst í heiðhvolfinu. Dæmigert vetrarástand, sem einhverra hluta vegna hefur ekki verið áberandi um hávetur undanfarin ár.
*Kortið er spá GFS frá 2. jan kl. 00 og gildir 9. jan kl. 12. Sýnir hæð 500 hPa og frávik frá meðallagi árstímans. Nokkuð einkennandi fyrir stöðuna, kaldur kjarni hér yfir og öflug V-átt skammt suður undan. Mikill breytileika er þó á milli daga.