Ný langtímaspá
frá Evrópsku Reiknimiðstöðinni reiknar með því að fyrri hluti septembermánaðar
verði hægviðrasamur, mildur og þurr.
Að loknum rigningunum
sunnananlands nú lok ágúst og skammvinna N-átt í vikulokin er að sjá á háþrýstisvæði
verði allsráðandi hér við landið a.m.k. til 10. til 11. sept
Spáin er greind
niður á vikur.
Næsta vika 4. til 11. september eru yfirgnæfandi líkur á hæðarhrygg hér í háloftunum við landið. Að sama skapi hár loftþrýstingur yfir landinu og með því þurrviðri og sólríkir dagar. Ágætur hiti því að deginum, en næturkuldi ef saman fer heiðríkja og hægur vindur.
Fyrri spákortin tvö sýna frávik hita og úrkomu þessa vikuna.
Í þriðju vikunni,
12. – 18. september er meiri dreifing í safnspánum. Þó meira en 50% líkur á að
áframhald verði hæðarhrygg við landið af einhverju tagi. Um 20% líkur á að
lægðir með úrkomu nái aftur til landsins og 10-15% líkur á að snúist til
N-áttar með kólnandi veðri.
Síðasta kortið sýnir frávikin í hæð 500 hPa þrýstIflatarins. Hærri hér við land og áberandi lágur í N-Evrópu. Þar eru líka vísbendingar um úrkomutíð og gleður eflaust ýmsa eftir margvísleg vandræði samfara þurrkum í sumar.