Allar líkur eru á
einkar mildu og vorlegu veðri í komandi viku a.m.k. fram að sumardeginum fyrsta
(20. apríl).
Undir næstu helgi má sjá teikn um veilur í spánni – eða öllu heldur nokkurs konar óvissupunkt sem getur leitt til tveggja (eða fleiri) valkosta í veðri næstu daga.
Hæðin austur við
Noreg er völd að vorblíðunni í næstu viku. Veitið athygli háloftadragi vestan við Grænland. Það smeygir sér suðaustur yfir Grænland og spáð
vestur af landinu á föstudag. Um leið rekur meginhæðina til austurs og verður
yfir Danmörku á föstudag.
En önnur hæð
kemur við sögu, eiginlega hryggur sem veður skv. sömu spá að bólu eða aflokaðri
hæð við suðvestanvert Grænland.
Þrír möguleikar á
framhaldi.
(1). Lægðin grefur um
sig næstu daga og beinir til okkur köldu lofti og hreti.
(2). Hæðirnar tvær ná
saman yfir Íslandi m.a. fyrir tilstuðlan lægðarinnar sem sjá má á suður af
landinu.
(3). Meginhæðin í austri
styrkir sig í sessi og áhrifa hennar gætir skýrt aftur síðustu vikuna í apríl
með mildu veðri á ný.
Í safnspá ECMWF frá í morgun má sá þessa voakostagreiningu á spákorti fyrir þriðjudaginn 25. apríl. (1) er til hægri, (2) er til vinstri og (3) í miðið ásamt áætluðum líkum.
Að lokum er
spákort mánaðarspá ECMWF sem reiknuð var
í gærkvöldi (13. apríl). 50 safnspár.
Svipuð mynd og valkostir, en aðrar líkur.
Óvissa er metin lítil í spám næstu 6 dagana, en þröskuldurinn í spágetunni er hins vegar greinilegur á 7. degi spátímans eða á föstudag eftir viku. Mikilvægt er greina óvissuna og hvers kyns veður er líklegra en annað. Á þessum árstíma skiptir öllu að greina bakslag eða vorhret í spánum og meta líkur á slíkum leiðindum.