UMPÓLUN AÐ LOKNU KULDAKASTI
Vel er þekkt að
með miklu háþrýstisvæðum við landið að þá getur veður breytst mjög snögglega
frá vþí að vera stöðugt yfir í það að verða óstöðugt. Gerist nánast eins og
hendi sé veifað. Eiturblanda að sjá ískalda loftið úr norðri suður
fyrir land og yfir mun hlýrri sjó saman með reki ríkjandi hæðar til vesturs og
frá landinu. Eitthvað þessu líkt eiginlega
um leið og kuldakastið nær hámarki á föstudag.
Til sögunnar kemur líka háloftadrag koma norðvestur yfir Grænland. Við það
myndast lægð hér nánast yfir okkur og hún hefur all burði til að dýpka og
skófla yfir okkur snjó.
Átökin í háloftunum verða svo að segja ofan í landsteinunum og óvissa því mikil. Í raun eru flestar spár enn einhvers konar tilgátur um framhaldið.
Berum t.d. saman aðalspá ECMWF og GFS og horfur á spákort fyrir hádegi á sunnudag. Það fyrra er GFS spáin bandaríska. Þar má sjá skarpt lægðardrag við SV-vert landið og bakka með snjókomu yfir mest öllu vestanverðu landinu. Oft grafa lægðir sem þessar sig niður við áþekkar aðstæður og snjóað getur óhemju. Spákort ECMWF er at talsvert öðrum toga. Breytingar verða fyrr og álitleg lægð suður af Hornafirði með hvassri NA-átt og hríðarveðri NA- og A-lands.
Lítum betur á breytingarnar sem við eigum í vændum. Fyrst kort af stöðu mála upp í um 9 km hæð í 300 hPa þrýstifletinum úr spám ECMWF af Brunni Veðurstofunnar. Hæðin sem mjög hefur komið við sögu að undanförnu suðvestur af landinu, NV-átt í hæð hér yfir og áberandi hæðarsveigja í straumnum. Tryggir niðurstreymi loft og þar með bjartviðri. Ekkert sér til kuldans á þessu korti í neðri lögum með A-Grænlandi og stefnir hingað.
Hæðina rekur til
vesturs og það eitt er vísbending um að fylgjast verður vel með þróun mála.
Seinna kortið af sama toga gildir aðfararnótt laugardags. Þá er hæðin komin vestur undir Labrador og komið skarpt lægðardrag hér suðvesturundan og lægðarsveigja í háloftastraumnum. Sjá má líka háloftaröst með NV-átt yfir S-Grænland. Dæmigerð forskrift að örri dýpkum lægðar skammt suðvestur af landinu.
Bæði líkön sýna þessa sömu meginþróun, en munurinn felst í smáatriðum þessarar myndar. Eins og: styrk háloftarastarinnar, tímasetningu, hvernig dragið og kalda loftið mætir mildara lofti úr suðri , kreppu háloftadragsins sem kemur yfir Grænland og spurningunni um það hvort dragið sé eitt eða þau jafnvel tvö?
Safnspárnar sem
keyrðar eru samhliða eru æði fjölbreyttar frá og með laugardegi og eru þær til
marks um óvissuna. Trúlega skýrast spár
ekki fyrr en á fimmtudag eða föstudag.