VEÐURLAGSSPÁ JÚNÍ TIL ÁGÚST

Hér fyrir júní til ágúst (JJA). Síðasta spá var fyrir maí til júlí (MJJ). Hún var aðeins frábrugðin eins og eðlilegt má
teljast þegar einn mánuður dettur út og annar kemur inn í staðinn.
Samantekin spá: Veðurlag sumarsins einkennist af þokkalegum
hlýindum einkum á hálendinu og fyrir norðan og austan. Þar eru 60-70% líkur á að hiti endi í efsta
þriðjungi miðað við síðustu 20 ár. Lofthringrásin og staða
veðurkerfa er spáð að verða nokkuð breytileg, þar sem skiptast á ólíkir veðurkaflar
yfir sumarmánuðina. Ekki er að sjá nein
merki þess að einhver ákveðin vindátt verði frekar ríkjandi umfram aðra.
Síðustu vikur hafa orðið markverðar breytingar í Kyrrahafi
og EL-Ninio ástandi hefur ekki náð að festa sig í sessi eins og áður var talið
mjög líklegt. Hefur áhrif á veðurlag
víða um heim og þar með einn af áhrifaþáttum veðurlagsspárinnar fyrir komandi
sumar. Lítum á nokkur kort.
1.
Frávik sjávarhita. Sjór verður allt að 1 til 2 stigum hlýrri en að jafnaði norður og austur af landinu. Belti af kaldari yfirborðssjó en að jafnaði er spáð frá Nýfundnalandi og hér djúpt suðvestur undan. Þetta er “Blái borðinn” og almennt er að sjá heldur kaldari sjó þvert yfir Atlantshafið í átt til Írlands. Kælir að sumri og veldur frekar skýjum en annars sem og úrkomu í þeim tilvikum þegar loft kemur úr þeirri átt.
2.
Staðan í háloftunum (500 hPa) bendir til jákvæðara frávika yfir meginlandi Evrópu og þá frekar austarlega, en nærri meðallagi á okkar slóðum. Tökum eftir stærri frávikum við Alaska og á Beringshafi. Það eru einkum þau sem móta lofthringrásina umhverfis norðurhvelið. Mögulega skiptast á ólíkir veðurkaflar og skammt verður öfganna á milli, en jafnast út í meðaltalinu.
3.
Þrýstifrávik eru ógreinileg á okkar slóðum. Spáð markvert hærri þrýstingi langt suður í höfum og eins áberandi frávik suður af Alaska. Hægt að túlka sem óvissu á okkar slóðum, en líka meiri breytileika í veðurfari og síður einsleitt tíðarfar.
4.
Greinilega hlý frávik norðan og austanlands. Fylgifiskur sjávarhitans við landið eins og oftast er. 60-70% líkur á að meðalhiti verði í efsta þriðjungi á hálendinu og innsveitum fyrir norðan og austan. Erfiðara að segja til um hitafrávik sunnanlands.
5.
Spáð er meiri úrkomu en að jafnaði á eiginlega sömu landsvæðum og gert er ráð fyrir hlýindum. 50-60% líkur á markvert meiri rigningu á hálendinu sem og austanlands. Er sennilega líka til marks um breytilegt veðurlag í sumar þar sem engin sérstök vindátt verði ríkjandi.