Arnarholtsvöllur er í ca 7 km fjarlægð frá Dalvík. Hann er staðsettur á svokölluðu Arnarholti í Svarfaðardal en þar herma sagnir að landnámsmenn dalsins séu grafnir. Þar hafa verið grafin upp kuml úr heiðnum sið sem styðja þá sögn. Nú er á holtinu minnismerki um frumbyggja dalsins.
Golfvöllurinn er tvímælalaust ein af útivistarperlum Dalvíkurbyggðar í stórbrotnu umhverfi og nýtur mikilla vinsælda bæði heimamanna og gesta. Golfklúbburinn Hamar sér um rekstur og viðhald vallarins.
Einnig er á Dalvík lítill æfingavöllur með þremur holum. Völlurinn er milli kirkjunnar og heilsugæslunnar og er öllum opinn.