Golfvöllurinn er 9 holu völlur hannaður af Hannesi Þorsteinssyni. Brautirnar liggja meðfram bökkum Kaldár og Stuttár og kylfingurinn þarf að vanda sig við leikinn því víða liggja brautir yfir vatn og oft er stutt í skóginn.
Fyrsti teigur er fyrir neðan sundlaugina og eru vallargjöld greidd í afþreyingarmiðstöð.