Hugmyndir um gerð golfvallar á jörðinni Nesi í Reykholtsdal kviknuðu við þáttaskil í búskap á býlinu. Nes er nýbýli skipt frá jörðinni Skáney árið1937 og liggur í miðjum dal, um 2,5 km vestan við Reykholt við veg 518. Golfvöllurinn liggur austast í landi jarðarinnar milli þjóðvegarins og Reykjadalsár. Hann er ræktaður á gömlum túnum og graslendi. Lækur fellur um hann í landbroti. Næst veginum er sléttlendi með skjólbeltum en nær ánni einkenna lautir og hólar landið.
Völlurinn er níu holu, par 70. Lengd hans frá gulum teigum er 2669 m. og 2337 m. og frá rauðum 2001 m. Einnig er rúmgott æfingasvæði og æfingaflöt fyrir púttspil. Undirbúningur í landinu hófst árið 2004 með gerð lokræsa og skjólbelta til viðbótar þeim eldri skjóbeltum sem voru. Flatirnar voru sumar upphaflega ræktaðar í túninu en aðrar byggðar upp. Reykholtsdalsvöllur var opnaður til notkunar um sólstöður sumarið 2008. Golfskáli var reistur árið 2007. Þar eru sæti fyrir allt að 60 manns.
Golfklúbburinn Skrifla var stofnaður í árslok 2008. Reykholtsdalsvöllur er hans heimavöllur og hefur klúbburinn samning við landeigendur um afnot mannvirkja og réttindi félaga á staðnum. Klúbburinn er aðili að Golfsambandi Íslands. Vallarmat fyrir Reykholtsdalsvöll tók gildi 16. febrúar 2010.