Við höfum ekki upplýsingar um verð á þessu tjaldstæði. Við viljum endilega fá frekari upplýsingar um verðskrána.
Ef þú þekkir hefur frekari upplýsingar þá máttu endilega senda okkur póst á vedurvaktin@vedurvaktin.is
Áfangi er gagnamannaskáli í eigu Húnavatnshrepps.
Á sumrin er rekin ferðaþjónusta sem tekur á móti ýmiskonar hópum s.s hestahópum og gönguhópum.
Veitingasala er í Áfanga fyrir gesti og gangandi.
Í Áfanga er svefnpokapláss fyrir 32 manns í 8 fjögura mann herbergjum. Svefnpláss á dýnum í setustofu. Hægt að fá uppábúin rúm.
Eldhús og borðsalur eru til afnota fyrir næturgesti og hópa. Aðkeyrsla og dyr beint inn í eldhúsið.
Veitingasala og verslun er í Áfanga. Boðið er uppá morgunmat, hádegismat, kaffi og kvöldmat. Súpa og brauðmeti er ávallt til en stærri máltíðir þarf að panta fyrirfram.
Í Áfanga er heitur pottur og góð sturtuaðstaða.
Fátt er betra en hvíld í heitum potti eftir langan ferðadag.