Tjaldsvæðið er stðsett austan megi við hringveginn, norðan við brúna yfir Blöndu. Það er að mestu leyti slétt og gróið. Efri hluti tjaldsvæðisins er skjólbetri en sá neðri. Til að tryggja öryggi gesta, hafa öryggismyndavélar verið settar upp sem gæta inngangsins og svæðisins alls.
Þjónustan á tjaldsvæðinu er góð. Rafmagn er til staðar, og í þjónustuhúsinu er bæði heitt og kalt vatn, auk góðrar salernisaðstöðu. Þar er jafnframt salerni fyrir fatlaða og uppvöskunaraðstaða.