Blika.is er í eigu Veðurvaktarinnar ehf, vedurvaktin@vedurvaktin.isUm Bliku
Laugarhóll
1 / 2

Upplýsingar

4513380
http://www.laugarholl.is
laugarholl@laugarholl.is
65.7812706064, -21.5192057567
1.6. - 1.9.

Verð

Fullorðnir1.500 kr
13 - 17 ára1.500 kr
6 - 12 ára800 kr
1 - 5 ára0 kr
Rafmagn1.500 kr
Ellilíferisþegi1.500 kr
Gistináttagjald400 kr
Síðast uppfært: 2025

Þægindi

Kalt vatn
Heitt vatn
Rafmagn
Upplýsingar vantar
Upplýsingar vantar
Símasamband
Ekkert WiFi
Hundar leyfðir
Upplýsingar vantar
Vatnssalerni

Um tjaldsvæðið

Hótel Laugarhóll er heimilislegt, sveitahótel í gróðursælum dal á Ströndum, miðja vegu milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Boðið er upp á gistingu í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum, með eða án sér baðs. Einnig er tekið er á móti hópum, allt að 40 manns í uppbúin rúm. Á Laugarhóli er að finna notalega setustofu með nettengingu, veitingastað, íþróttasal og gallerí, sundlaug og heitan pott. Skammt frá hótelinu er tjaldsvæði með rennandi vatni og salernum.

Utan háannatíma hentar staðurinn einstaklega vel til funda-, námskeiða- og ráðstefnuhalds og ekki síður sem æfingabúðir fyrir kóra, leik- og íþróttahópa, björgunarsveitir eða gönguskíðagarpa,

Við hótelið stendur Gvendarlaug hins góða, ylvolg sundlaug, með náttúrulegu heitu vatni (32°C) og náttúruleg heit uppspretta (42°C), vinsæll viðkomustaður hjá lúnum ferðalöngum. Í næsta nágrenni eru fjölbreyttar og fallegar gönguleiðir, silungsveiði, hestaleiga, sjóstangveiði og lundaskoðun, ósnert og víða stórbrotin náttúra og ævintýralegar rekafjörur sem eru eitt helsta tákn Strandasýslu.

Frá Reykjavík er rúmur þriggja stunda akstur (258 km) að Laugarhóli, gegnum Borgarnes og Búðardal til Hólmavíkur. Þaðan liggur leiðin fyrir botn Steingrímsfjarðar og yfir Bjarnarfjarðarhálsinn. Hótel Laugarhóll er við veg nr. 643.