Blika.is er í eigu Veðurvaktarinnar ehf, vedurvaktin@vedurvaktin.isUm Bliku
Tjaldsvæðið Eyrarbakka
1 / 1

Upplýsingar

4831408
http://www.eyrarbakki.is
bsbjorg@gmail.com
63.864405, -21.155048
15.5. - 1.10.

Verð

Fullorðnir1.500 kr
1 - 17 ára0 kr
Gistináttagjald400 kr
Síðast uppfært: 2025

Þægindi

Kalt vatn
Heitt vatn
Rafmagn
Engin eldunaraðstaða
Engin sturta
Símasamband
Ekkert WiFi
Hundar leyfðir
Engin þvottavél
Vatnssalerni

Um tjaldsvæðið

Tjaldsvæðið er staðsett vestast við Eyrarbakka, vestan við Hafnarbrú. Tjaldsvæðið er í nálægð við fuglafriðland og rétt við fjöruna.

Eyrarbakki er vinalegt þorp við Suðurströndina sem státar af mikilli sögu, vel varðveittum gömlum húsum og fallegri náttúru. Tvö söfn eru á Eyrarbakka, Byggðasafn Árnesinga sem er staðsett í Húsinu, sögufrægum bústað kaupmanna, og Sjóminjasafnið sem er örskammt frá. Í Húsinu ríkir hlýlegur og heimilislegur andi og sagan er við hvert fótmál. Söfnin standa í miðju þorpi rétt við kirkjuna.

Í Eyrarbakkakirkju er að finna altaristöflu málaða af Louise drottningu Kristjáns IX. Á sömu torfu er veitingastaðurinn Rauða Húsið sem tekur vel á móti svöngum ferðalöngum hvort sem er í kaffi eða mat. Allir verða að taka sér göngutúr um þorpið. Þá má virða fyrir sér gömlu húsin, heimsækja handverkskonuna Regínu eða koma við í gamla frystihúsinu í Gónhól þar sem eru markaðir og gallerí. Austarlega á Bakkanum er Vesturbúðin, alhliða verslun og bensínstöð þar sem helstu nauðsynjavörurnar fást og hægt að horfa á boltann í beinni.

Tjaldsvæðið er staðsett vestast í þorpinu í rólegu og þægilegu umhverfi góðar gönguleiðir eru frá tjaldsvæðinu hvort sem um er að ræða að skoða rómaðan Eyrarbakkan eða skemmtileg fjöruganga.

Tjaldsvæðið er einfalt með köldu og heitu vatni, Rafmagn er á svæðinu. Leiksvæði er mjög fínt.