Blika.is er í eigu Veðurvaktarinnar ehf, vedurvaktin@vedurvaktin.isUm Bliku
Tjaldsvæðið Skagaströnd
1 / 1

Upplýsingar

7760040
www.skagastrond.is/is/thjonusta/tjaldsvaedi
skagastrond.camping@gmail.com
65.82588, -20.292556
1.5. - 15.9.

Verð

Fullorðnir2.200 kr
16 - 17 ára2.200 kr
1 - 15 ára0 kr
Rafmagn1.300 kr
Ellilíferisþegi2.200 kr
Þvottur800 kr
Gistináttagjald400 kr
Síðast uppfært: 2025

Þægindi

Kalt vatn
Heitt vatn
Rafmagn
Eldunaraðstaða
Sturta (greitt)
Símasamband
Ekkert WiFi
Hundar leyfðir
Þvottavél
Vatnssalerni

Um tjaldsvæðið

Tjaldsvæðið á Skagaströnd er á skjólsælum og rólegum stað rétt austan við byggðina og horfir á móti sólu. Svæðið er í fallegu umhverfi og nýtur skjóls til norðurs og austurs af lágum klettahólum sem kallaðir eru Hólaberg. Á tjaldsvæðinu er gamall bæjarhóll í þeim sem bærinn Höfðahólar stóð. Runnar skipta svæðinu upp í nokkra reiti sem skapa þægileg umhverfi fyrir tjöld, húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Rafmagnstenglar eru á nokkrum stöðum. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir börn, spennandi náttúrulegt umhverfi og leiktæki.

Í þjónustuhúsinu er sturta, vatnssalerni, þvottavél og aðstaða til að matast innanhúss fyrir þá sem það vilja og vaskur til uppþvotta. Þar má einnig fá margvíslegar upplýsingar fyrir ferðamenn m.a. veglega bæklinga um gönguleiðir á náttúruperluna Spákonufellshöfða og á fjallið Spákonufell. Þarna er einnig gestabók og eru ferðalangar beðnir um að rita nöfn sín í hana. Ferðafólk er beðið um að ganga vel um og skilja þannig við bæði tjaldsvæðið og þjónustuhúsið aðrir geti líka notið dvalarinnar.